HomeNeðri deildir1. deild karlaLætur af störfum hjá Skallagrími

Lætur af störfum hjá Skallagrími

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Pétur Sigurðsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi sínu. Pétur tók við liðinu sumarið 2024 og hefur stýrt því síðan þá, en nú hefur verið ákveðið að leiðir skilji.

Í yfirlýsingu frá félaginu er Pétri þakkað kærlega fyrir vel unnin störf í þágu klúbbsins og honum óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi í framtíðinni. Ekki hefur verið gefið upp hver mun taka við keflinu af Pétri en búast má við fréttum af nýjum þjálfara á næstunni.

Fréttir
- Auglýsing -