HomeFréttirKyrie Irving skórnir frá ANTA mættir til Íslands

Kyrie Irving skórnir frá ANTA mættir til Íslands

Íslenskir körfuknattleiksunnendur geta nú nálgast keppnisskó NBA-stjörnunnar Kyrie Irving hér á landi en verslunin Wodbúð hefur tekið kínverska íþróttavörumerkið ANTA til sölu.

Samstarf Irving og ANTA hófst eftir að samningi leikmannsins við Nike lauk, en samhliða skóframleiðslunni tók Irving við starfi yfirhönnuðar (Chief Creative Officer) hjá körfuboltageira fyrirtækisins þar sem hann hefur yfirumsjón með hönnun sinnar eigin vörulínu.

Íslenskum áhugamönnum gefst nú kostur á nýjustu útgáfu línunnar, ANTA KAI 3, sem ber öll helstu einkenni fyrri skóa kappans. Skórnir eru hannaðir með hringlaga ytri sóla, áherslu á léttleika, lága stöðu og gott grip til að tryggja sem besta snertingu við leikgólfið.

Hérna er hægt að skoða ANTA skóna betur

Fréttir
- Auglýsing -