HomeBónus deildinBónus deild karlaKvitta Stólarnir fyrir tapið í Síkinu?

Kvitta Stólarnir fyrir tapið í Síkinu?

Spennan er í hámarki í Garðabænum í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Tindastóli í öðrum leik undanúrslitanna í Bónus deildinni.

Stjörnumenn leiða einvígið 1-0 eftir gríðarlega dramatískan eins stigs sigur í fyrsta leiknum á Sauðárkróki. Með þeim sigri náðu þeir heimaleikjaréttinum yfir á sitt band og geta með sigri í ÞG Verk höllinni í kvöld komið sér í kjörstöðu fyrir framhaldið.

Stólarnir mæta hins vegar særðir til leiks og ætla sér vafalaust að jafna metin til að missa einvígið ekki í 2-0. Þar sem vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í sjálfu úrslitaeinvíginu er ljóst að hver karfa telur, sérstaklega í ljósi þess hve mjótt var á mununum í fyrstu rimmunni í Síkinu.

Leikur dagsins

Bónus deild karla – Undanúrslit

Stjarnan Tindastóll – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -