Heil umferð er í dag í Dominos deild kvenna. Mikil spenna er í deildinni, þar sem að við toppinn eru það aðeins 2 stig sem skilja að efsta lið deildarinnar, Snæfell, og svo Skallagrím og Keflavík í 2.-3. sætinu. Einnig er baráttan mikil um síðasta sætið í úrslitakeppninni. Sem stendur er Stjarnan í því, 4. sætinu, en aðeins 4 stigum fyrir neðan þær er Valur, sem enn eygir von um að ná sætinu og komast í úrslitakeppnina.
Leikir dagsins:
Skallagrímur Grindavík – kl. 19:15
Njarðvík Stjarnan – kl. 19:15
Valur Snæfell – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Keflavík Haukar – kl. 19:15




