spot_img
HomeFréttirKvennaliðið lá gegn Möltu í fyrsta leik

Kvennaliðið lá gegn Möltu í fyrsta leik

11:23
{mosimage}

(Helena gerði 16 stig og tók 10 fráköst í tapleik gegn Möltu)

Keppni í körfubolta er hafin á Smáþjóðaleikunum á Kýpur og var það kvennalandsliðið sem reið á vaðið í morgun gegn Möltu. Íslenska liðið mátti sætta sig við ósigur 53-69 en staðan fyrir fjórða og síðasta leikhluta var 42-38 Möltu í vil sem greinilega hafa spýtt vel í lófana á lokasprettinum.

Helena Sverrisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 16 stig og 10 fráköst en næst henni kom Kristrún Sigurjónsdóttir með 14 stig.

Karlalandslið Íslands hefur leik á mótinu kl. 12:00 og mætir þá einnig Maltverjum.

[email protected]

Mynd: Snorri Örn Arnaldsson

Fréttir
- Auglýsing -