HomeFréttirKvennalandsliðið á leið til Hollands: Skemmtileg mynd frá Ásvöllum

Kvennalandsliðið á leið til Hollands: Skemmtileg mynd frá Ásvöllum

14:58
{mosimage}

(Árvökul augu Maríu Ben leita að sendingarleið til fyrirliðans Signýjar Hermannsdóttur)

Íslenska kvennalandsliðið er nú komið áleiðis til Hollands þar sem það mætir heimamönnum í sínum öðrum leik í B-deild Evrópukeppninnar á morgun. Hollendingar unnu nokkuð óvæntan útisigur á Slóvenum í fyrstu umferð og ljóst að við ramman reip verður að draga hjá íslenska liðinu. Leikurinn fer fram kl. 17:30 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu á heimasíðu FIBA Europe.

Þá var okkur á Karfan.is bent á skemmtilega mynd sem hér ofan við fréttina sem tekin var á leik Íslands og Sviss að Ásvöllum á miðvikudag. Skemmtilegt hvernig ljósmyndarinn fangar augun á Maríu Ben Erlingsdóttur. Myndina tók Haraldur Guðjónsson ljósmyndari hjá Morgunblaðinu en hann heldur úti FLICKR síðu sem nálgast má hér:

http://www.flickr.com/photos/hagmynd/2806218650/

Mynd: Haraldur Guðjónsson

Fréttir
- Auglýsing -