HomeBónus deildinBónus deild karlaKveður Keflavík eftir fimm tímabil

Kveður Keflavík eftir fimm tímabil

Keflavík tilkynnti í dag að Halldór Garðar Hermannsson muni láta af störfum hjá félaginu eftir fimm tímabila veru.

Halldór Garðar, sem hefur gegnt hlutverki fyrirliða, kveður klúbbinn eftir farsælan feril þar sem hann átti meðal annars stóran þátt í því að tryggja liðinu bikarmeistaratitil á sínum tíma.

Í kveðju sinni lýsir körfuknattleiksdeild Keflavíkur yfir miklu þakklæti fyrir dýrmætar minningar og öflugt framlag hans til liðsins í gegnum árin.

Fréttir
- Auglýsing -