HomeBónus deildinBónus deild kvennaKveður Íslandsmeistarana

Kveður Íslandsmeistarana

Paulina Hersler mun ekki leika áfram með Njarðvík á komandi leiktíð, en körfuknattleiksdeild félagsins tilkynnti þetta í dag. Hersler gekk til liðs við Njarðvík fyrir tímabilið 2024–2025 og lék með liðinu tvö keppnistímabil.

Hersler skildi eftir sig stórt spor í Njarðvík þar sem hún varð bikarmeistari með liðinu árið 2025 og Íslandsmeistari árið 2026. Í þeim 40 leikjum sem hún spilaði fyrir félagið í deildar- og úrslitakeppni skilaði hún glæsilegri tölfræði, eða 18 stigum og 8 fráköstum að meðaltali í leik. Njarðvíkingar þakka henni kærlega fyrir sitt framlag og óska henni velfarnaðar í næstu verkefnum.

Fréttir
- Auglýsing -