KV tryggði sig í kvöld í undanúrslit umspils 1. deildar karla með flottum sigri á Fjölni á Meistaravöllum. Leiknum lauk með 92–84 sigri KV sem vann þar með einvígið samanlagt 3–1. Fjölnismenn mættu af krafti en heimamenn stóðust áhlaupin og sigldu sigrinum í höfn á lokakaflanum fyrir framan tæplega 200 áhorfendur.
Með þessu er ljóst að KV fylgir Sindra og Breiðabliki áfram í næstu umferð. Aðeins einu sæti er óskipað í undanúrslitunum, en þar mætast Haukar og Selfoss. Haukar geta tryggt sér síðasta lausa plássið með sigri í sínum leik á morgun.




