Stóra stundin er runnin upp fyrir KV og Fjölni í átta liða úrslitum fyrstu deildar karla. KV leiðir einvígið 2–1 og getur með sigri á Meistaravöllum í kvöld tryggt sér farseðilinn í undanúrslit.
Fjölnismenn mæta hins vegar með bakið upp við vegg og verða að sigra til að knýja fram hreinan úrslitaleik. Fari KV áfram bætast þeir í hóp með Breiðabliki og Sindra sem þegar hafa tryggt sér sæti í næstu umferð. Leikurinn hefst klukkan 19:15.
Leikur dagsins
Fyrsta deild karla – 8 liða úrslit
KV Fjölnir – kl. 19:15




