Bandaríkin settu nokkur athyglisverð met í gær þegar þeir kjöldrógu Nígeríu 156-73 á Ólympíuleikunum í London. Bókstaflega allt söng í netinu hjá ofurstjörnum bandaríska liðsins og þjálfarinn Mike Krzyzewski viðurkenndi, þrátt fyrir langan feril í þjálfun, að hafa aldrei hafa séð annað eins.
Bandaríkin settu í þessum stórsigri Ólympíumet fyrir flest stig í fyrri hálfleik og heildarskori, 156 stig. Carmelo Anthony setti annað með þegar hann skoraði 37 stig í leiknum en fyrra metið átti Stephon Marbury sem var 31 stig gegn Spáni árið 2004. Melo skellti niður 10 af 12 þristum sínum sem er met, Bandaríkin settu met í teigkörfum (59), þristum (29 af 46), teignýtingu (71,1%), stigamun með 83 stiga sigri og jöfnuðu met í stoðsendingum, alls 41.
Krzyzewski gat ekki annað en verið sáttur eftir leik og í viðtali á NBA.com sem nálgast má hér segir þjálfarinn að liðið sé enn að aðlaga sig að alþjóðaboltanum. Ja hérna…hvað gerist þegar þeirri aðlögun lýkur? 100 stiga sigrar eða meira?