Krakkarnir í 7. flokki KR stóðu sig vel á Scania Cup í ár.
Stelpurnar enduðu í 11. sæti eftir krefjandi Scania mót þar sem þær sýndu mikinn karakter. Eftir erfiða riðlakeppni fóru þær í umspil um 9.–16. sæti. Þær unnu fyrsta leikinn þar en töpuðu þeim næsta, en kláruðu mótið af miklum krafti með tveimur glæsilegum sigrum í röð. Þessi sterki endasprettur tryggði þeim 11. sætið á þessu sterka norræna móti.

Strákarnir í 7. flokki enduðu í 7. sæti eftir flotta spilamennsku. Þeir hófu leik af miklum þrótti, unnu fyrstu tvo leiki sína og tryggðu sér efsta sæti riðilsins. Þrátt fyrir tap í 8-liða úrslitum héldu þeir ótrauðir áfram í baráttu um 5.–8. sæti. Eftir eitt tap og góðan sigur í lokaleiknum niðurstaðan 7. sætið. Bæði lið KR mega vera stolt af sinni frammistöðu og þeirri dýrmætu reynslu sem fékkst í Svíþjóð.
Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].




