spot_img
HomeFréttirKristrún hvíld í kvennaleiknum í dag

Kristrún hvíld í kvennaleiknum í dag

13:18
{mosimage}

(Kristrún Sigurjónsdóttir)

Henning Henningsson, þjálfari kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að hvíla Kristrúnu Sigurjónsdóttur, leikmann Hauka, í dag í leiknum gegn Kýpur vegna meiðsla í kálfavöðva.

Læknar íslenska liðsins hafa skoðað Kristrúnu og telja að ef hún spilar leikinn þá er möguleiki á að vöðvinn rifni og það myndi þýða 6-8 vikna fjarveru frá æfingum landsliðsins og að auki þá á hún það á hættu að missa úr leiki landsliðsins í evrópukepnninni í ágúst.

Henning vill ekki taka þá áhættu og því hefur verið ákveðið að Kristrún spili ekki úrslitaleikinn um silfurverðlaunin gegn Kýpur í dag.

Að öðru leiti eru allir klárir í slaginn en leikurinn hefst kl 15.00 að íslenskum tíma.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -