Kristófer Acox lék sinn fyrsta leik fyrir Star Hotshots í Filippseyjum í gær þegar liðið lék við TNT KrTropa. Kristófer átti frábæran leik fyrir Filippiseyjaliðið þrátt fyrir tap.
Kristófer var með 18 stig, 18 fráköst og 3 stoðsendingar á 41 mínútu. Hann hitti vel í leiknum eða 52% heilt yfir. Hotshots töpuðu hinsvegar leiknum 99-104.
Möguleikar Star HotShots á að komast í úrslitakeppnina eru því takmarkaðir eftir leikinn en þrír leikir eru eftir af deildarkeppninni.




