spot_img
HomeFréttirKristófer og fyrrum NBA leikmaður meðal bestu erlendu leikmanna í Filippseyjum

Kristófer og fyrrum NBA leikmaður meðal bestu erlendu leikmanna í Filippseyjum

Úrslitakeppnin í Filippeysku deildinni hefst á morgun þar sem Íslenski landsliðsmaðurinn Kristófer Acox leikur með Star Hotshots. Hann hefur leikið fjóra leiki með liðinu og staðið sig gríðarlega vel. 

 

Í nýliðinni viku var Kristófer valinn á lista yfir fimm bestu erlendu leikmenn deildarinnar. Í umsögn segir: „Kristófer skilar kannski ekki mögnuðum tölum en hann er líklega nákvæmlega það sem Star Hotshots þurfti rétt fyrir úrslitakeppnina.“ Í leikjum vikunnar sem liðið vann báða og tryggði sér þar með fjórða sæti deildarinnar var Kristófer með tvöfalda tvennu í þeim báðum. 

 

Það er ekki ónýtur félagsskapurinn sem Kristófer er í á þessum lista en helst ber að nefna Glen Rice Jr. sem lék tvö tímabil með Washington Wizards. Þá eru tveir Íslandsvinir á listanum, annars vegar Terrence Watson sem lék með ÍA og Haukum við mjög góðan orðstýr. Þar leikur einnig J'Nathan Bullock sem varð Íslandsmeistari með Grindavík 2012 og valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar það árið.

 

Úrslitakeppnin hefst á þriðjudaginn og mætir Hotshots liði NLEX. Komist Star Hotshots í undanúrslit þarf þrjá leiki til að komast áfram. Fyrirkomulagið í Filippseyjum er annað en við þekkjum þar sem liðin sem fá heimaleikjarétt þurfa einungis að vinna einn leik til að komast áfram en liðið sem endar neðar þarf að vinna tvo. 

 

Listann má finna í heild sinni hér.

 

Mynd / Facebook síða PBS.

Fréttir
- Auglýsing -