spot_img
HomeFréttirKristófer líklega á leið til Frakklands

Kristófer líklega á leið til Frakklands

Kristófer Acox mun að öllum líkindum semja við lið Denain í Frakklandi um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Benedikt Guðmundsson sagði frá þessu á Twitter fyrr í dag og staðfestir Kristófer þetta í samtali við Fréttablaðið nú fyrir stundu. 

 

 

Í viðtali við Fréttablaðið segir Kristófer: „Ég er með tilboð frá þessu félagi undir höndum og býst við því að ég skrifi undir bara mjög fljótlega undir þennan samning. Mér líst mjög vel á þetta og ekkert sem ég sé sem getur komið í veg fyrir að ég leiki með þeim á næstu leiktíð," 

 

Fyrir rúmri viku samdi liðsfélagi Kristófers með landsliðinu Elvar Friðriksson við Denain og verða þeir því liðsfélagar í Frakklandi einnig. Denain endaði í tíunda sæti í frönsku Pro-B deildinni á síðustu leiktíð. Deildin er sú sama og Martin Hermannsson lék í fyrst er hann kom til Evrópu og gæti því reynst góður stökkpallur fyrir Kristófer og Elvar. 

 

„Ég hef aldrei komið til Frakkands og þetta lítið til þessa liðs. Þá má því klárlega segja að ég sé að renna blint í sjóinn. Það er bara spennandi og ég hlakka mikið til. Það hefur verið á stefnuskránni að komast út í atvinnumennsku lengi og þetta er fínt fyrsta skref held ég," sagði Kristófer einnig í viðtali við Fréttablaðið.

 

Kristófer var valinn bestu leikmaður Dominos deildar karla á nýliðinni leiktíð er hann fór fyrir sínu liði, KR er liðið vann fimmta Íslandsmeistaratitilinn í röð. Hann gerði tveggja ára samning við KR fyrir stuttu en í honum var möguleiki á að semja við lið í evrópu. 

 

Fréttir
- Auglýsing -