Kristófer Acox hefur vakið verðskuldaða athygli þetta tímabilið með miðskólaliði sínu Spring Valley High School í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Þó nokkur tilþrifamyndbönd af Kristófer hafa þegar runnið út á netið þar sem kappinn fer hreinlega á kostum. Karfan.is náði tali af Kristófer sem þegar hefur fengið nokkrar áhugaverðar fyrirspurnir.
,,Tímabilið er í fullum gangi hjá okkur og það gengur alveg ágætlega, við höfnuðum í 2. sæti á jólamóti sem við tókum þátt í en áttum alveg að vinna úrslitaleikinn sem við töpuðum með 7 stigum,” sagði Kristófer sem var valinn í úrvalslið jólamótsins.
Skömmu eftir jólamótið léku Kristófer og félagar við erkifjendur sína í Ridgeview High School og þar vannst eins stig sigur og skömmu síðar lá Spring Valley með einu stigi er þeir töpuðu á flautukörfu gegn liði sem hefur enn ekki tapað leik. ,,Við erum að smella núna saman sem lið og erum alltaf að bæta okkur með hverjum leik sem við spilum,” sagði Kristófer sem vakið hefur athygli hjá Nike-liði sem spilar í Amateur Athletic Union (AAU).
,,Nike-liðið vildi fá mig til sín í sumar en hins vegar eru allir á yngra árinu í mínu liði að spila saman í öðru AAU liði og þeir vilja auðvitað fá mig til að spila með þeim í sumar. Þar sem ég er partur af liðinu og við þá búnir að leika saman heilt tímabil og ættum því að kunna vel hver á annan hef ég ákveðið að spila með mínum mönnum í sumar,” sagði Kristófer en AAU liðið hjá Spring Valley heitir Ravens í AAU deildinni.
Á dagskránni er svo vissulega Norðurlandamótið með U18 ára landsliði Íslands og er Kristófer væntanlegur heim í maí. ,,Ég kem heim daginn eftir lokaprófið mitt svo ég nái aðeins að venjast evrópskum tíma aftur og æfa aðeins með landsliðinu áður en við förum út til Svíþjóðar. Ég verð síðan heima á Íslandi í júní en flýg svo aftur til Bandaríkjanna til að spila í AAU deildinni og gera mig tilbúinn fyrir lokaárið mitt í Spring Valley,” sagði Kristófer svo dagskráin er þétt hjá kappanum.
,,Annars verð ég að viðurkenna að það er smá heimþrá í manni ennþá eftir jólin, það var skrítið að vera ekki heima um jólin, þetta er aðeins öðruvísi hér úti heldur en heima og ég er orðinn mjög spenntur að komast til Íslands, heim til múttu enda erfitt að vera án hennar um jólin svo það verður bara enn betra að hitta hana á Keflavíkurflugvelli í maí.”
Hér að neðan koma svo hlekkir á nokkur tilþrifamyndbönd með Kristófer hjá Spring Valley:
Þá hefur meistari Andri hjá Leikbrot.is einnig birt nokkur myndbönd af Kristófer þar sem hann sýnir snilli sína og verður afar fróðlegt að sjá hvernig kappinn mun koma inn í Norðurlandamótið í júníbyrjun.
Mynd/ Spring Valley hópurinn tímabilið 2010-2011. Kristófer er í öftustu röð.




