spot_img
HomeFréttirKristinn og Ísak dæma saman í kvöld

Kristinn og Ísak dæma saman í kvöld

Í kvöld mun sá einstaki viðburður gerast í Þorlákshöfn að feðgar dæma saman í Iceland Express deild karla leik Þórs og Vals. Það eru þeir Kristinn Óskarsson og sonur hans Ísak Ernir Kristinsson. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slíkt gerist í efstu deild karla í íslenskri körfuboltasögu. www.kki.is greinir frá.
Kristin Óskarsson sem hefur verið í fremstu röð íslenskra dómara í mörg ár. leikurinn í Þorlákshöfn er hans 560. leikur í Úrvalsdeild og leikir á vegum KKÍ eru komnir töluvert yfir 1000 auk fjölmargra annarra leikja, t.d. á erlendri grundu. Kristinn dæmdi sinn fyrsta leik í Úrvalsdeild haustið 1988 en það var leikur Njarðvíkur og Tindastóls sem fram fór í Njarðvík. Þá voru enn 5 ár í að Ísak myndi fæðast.
 
Nú 24 árum tæpum eftir að Kristinn dæmdi sinn fyrsta leik í Úrvalsdeild fylgir hann syni sínum úr hlaði á stóra sviðinu. Ísak er 18 ára gamall, fæddur 1993 og því um 2 árum yngri faðirinn þegar hann hóf að dæma í deildinni. Það er þó ekki eins og Ísak sé að hefja dómaraferilinn því hann hefur dæmt um 180 leiki á vegum KKÍ.
 
Þess ber þó að geta að Ísak er ekki yngsti dómarinn til að dæma í Úrvalsdeild en bæði Kristinn Albertsson og Jón Bender voru um 16 ára þegar þeir dæmdu sína fyrstu leiki.
 
www.kki.is
  
Fréttir
- Auglýsing -