spot_img
HomeFréttirKristbjörg Pálsdóttir snýr aftur heim í KR

Kristbjörg Pálsdóttir snýr aftur heim í KR

Kristbjörg Pálsdóttir hefur snúið aftur á heimaslóðir í KR. Kristbjörg, sem spilaði með yngri flokkum KR, kemur nú úr Stjörnunni sem hún samdi við í sumar en þar áður spilaði hún með Breiðablik.

 

Kristbjörg er dóttir Páls Kolbeinssonar og því ekki langt að sækja körfubolta hæfileikana. Kristbjörg hefur þegar leikið einn leik með KR gegn Fjölni en næsti leikur hennar verður á móti gömlu félögunum í Breiðablik. Liðin mætast í Smáranum á morgun, föstudag, kl. 19:15.

Fréttir
- Auglýsing -