Brandon Roy hefur komið körfuboltaheiminum á óvart og skrifað undir samning hjá Minnesota Timberwolves en Brandon Roy gaf það út fyrir aðeins rúmu hálfu ári að hann hefði þurft að leggja skóna á hilluna vegna langvarandi meiðsla í hné. Nú hefur Brandon Roy farið í aðgerð á hné, ekki ósvipaða kraftaverkameðferð og Kobe Bryant gegst undir í þýskalandi, og stefnir á að geta beitt sér með Timberwolves í vetur.
Brandon Roy segir að það hafi aðeins tekið hann tvo mánuði með skóparið á hillinnu að átta sig á því að hann vildi ekki hætta að spila körfubolta. Það verður því áhugavert að sjá hversu mikið Brandon getur beitt sér því það fer ekki á milli mála að ef Brandon getur beitt sér að fullu líkamlega þá er hann gífurleg viðbót við lið Timberwolves. Minnesota hafa einnig fengið Chase Budinger, Alexy Shved og Andrei Kirilenko til liðs við sig fyrir næsta tímabil.





