Valur og KR áttust við í Bónusdeild kvenna í kvöld, en þetta var fyrsti leikur liðanna eftir að deildinni var skipt í efri og neðri hluta. Þótt ekki hafi verið húsfyllir í N1-höllinni voru áhorfendur vel á tánum og studdu sín lið af krafti. Fyrir leikinn höfðu liðin unnið hvort annað á útivelli í vetur og því mátti búast við spennandi viðureign. Leikurinn stóð undir væntingum en KR var með undirtökin nánast allan tímann. Gestirnir leiddu eftir alla leikhluta og fóru að lokum með sigur af hólmi, 68–71, þrátt fyrir hetjulega baráttu heimakvenna.
Barátta og ryð í upphafi leiks
Það gætti ákveðins ryðs hjá báðum liðum í upphafi leiks. Baráttan var mikil en lítið var skorað fyrstu mínúturnar. Jafnt var á öllum tölum og liðin skiptust á að hafa forystu þar til skammt var eftir af fyrsta leikhluta. Þá settu KR-konur niður tvær góðar þriggja stiga körfur og náðu fimm stiga forskoti, 14–19.
Í öðrum leikhluta hélt baráttan áfram og bæði lið ætluðu að selja sig dýrt. Leikmenn köstuðu sér á alla lausa bolta en KR tókst að auka forystuna jafnt og þétt. Valskonur köstuðu boltanum of oft frá sér, enda neyddi vörn KR þær oft í erfiðar stöður. Þegar Alyssa Cerino fór loksins að hitta fyrir Val náðu heimakonur að minnka muninn örlítið fyrir hlé. Staðan í hálfleik var 31–39, gestunum í vil.
Naglbítur fram á lokasekúndurnar
Valur byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og ætlaði að gera áhlaup strax í upphafi. tveir þristar frá KR-konum slökktu þó í þeim vonum í bili. Hraðinn var mikill og hart tekist á en KR-ingar áttu frekar auðvelt með að komast aftur fyrir vörn Vals og skora auðveldar körfur. Þegar leið á leikhlutann fóru gestirnir hins vegar að misnota skot sín og Valur gekk á lagið. Fyrir lokafjórðunginn var munurinn kominn niður í fimm stig, 52–57.
Í síðasta leikhlutanum reyndi Valur allt hvað þeir gátu til að brúa bilið. KR virtist þó alltaf eiga svar sóknarlega þegar Valur nálgaðist. Þegar fjórar mínútur voru eftir skilaði erfiði Valskvenna loks árangri og þær komust yfir. Við það varð leikurinn að hreinum naglbíta. Á lokamínútunum reyndist risaþristur frá Jiselle og klaufalegur tapaður bolti hjá Val dýrkeyptur. KR fékk tvö stig í kjölfarið og náði fjögurra stiga forystu sem reyndist of stór biti fyrir Val að gína yfir. Lokatölur 68–71 fyrir KR.
Hjá Val var Alyssa Cerino atkvæðamest með 16 stig og 9 fráköst, þrátt fyrir að vera lengi í gang. Ásta Júlía Grímsdóttir skilaði 12 stigum og 11 fráköstum og Dagbjört Dögg Karlsdóttir var með 13 stig. Hjá KR átti Eve Braslis flottan leik með 19 stig og Jiselle bætti við 17 stigum. Næstu leikir liðanna fara fram 1. mars; þá fær Valur Íslandsmeistara Hauka í heimsókn en KR tekur á móti Grindavík.





