Kvennalið KR gerði góða ferð suður með sjó í kvöld og sigruðu heimastúlkur í Njarðvíkinni 62:71. KR hafði leitt í hálfleik með sjö stigum, 35:42 en þær tóku frumkvæðið í leiknum strax í fyrsta fjórðung þegar þær skoruðu 21 stig gegn aðeins 12 frá Njarðvík.
KR hófu seinni háflleik af miklum krafti og að sama skapi áttu Njarðvíkurstúlkur í miklum vandræðum með sóknarleik sinn. Njarðvík náðu aðeins að skora 5 stig í leikhlutanum og grunnur að sigri KR að miklu leyti lagður á þessum kafla. Njarðvík náðu að klóra í bakkann á lokasprettinum en ógnuðu aldrei sigri gestana.
Stigahæst hjá KR var Þorbjörg Friðriksdóttir með 15 stig en hjá Njarðvík var það Svala Sigurðardóttir sem kom af bekknum og setti 16 stig.