spot_img
HomeFréttirKR Reykjavíkurmeistari 2010

KR Reykjavíkurmeistari 2010

 
Hrafn Kristjánsson og KR bættu einu stykki Reykjavíkurmeistaratitli í safnið á næstsíðasta degi ársins 2010 þegar leikið var til úrslita í Reykjavíkurmótinu í Grafarvogi. Fjölnir og KR léku til úrslita í mótinu en ÍR og Valur börðust um 3. sætið.
Bronsleikurinn:
ÍR – Valur 87-75
Leikurinn var jafn fram í seinni hluta á 3 leikhluta, ungir strákar úr báðum liðum fengu að spreyta sig á vellinum og nýttu þeir mínútur sínar vel og sýndu takta sem þeir fá ekki að gera eins mikið af í deildarleikjum. Nemanja var atkvæðamestur hjá ÍR með 34 stig og svo kom Sveinbjörn C. Með 16 og Eiríkur með 11 stig, restin dreifðist yfir liðið nokkuð jafnt. Hjá Val var Snorri Sigurðsson með 27 stig, Hörður 13 stig og Björgvin 12 stig.
Fjölnir – KR 84 – 91
Leikur um 1. og 2. sætið var mun kraftmeiri en fyrri leikurinn, þar tókust á Fjölnir og KR sem mætast svo aftur í DHL höllinni nú strax á nýja árinu í bikarnum en sá leikur verður sjónvarpaður á RÚV þann dag.
 
Fjölnismenn byrjuðu betur og spiluðu hraðan leik og komust í 18 – 8 og KR náði að vinna upp þann mun fljótt aftur og leikurinn varð mjög jafn alveg fram í lokamínútur, KR nýttu vítin sín vel og voru sterkari í restina og unnu leikinn með 7 stigum. Litli bróðir hans Jakobs Sigurðarsonar Matthías Orri, leysti Pavel af sem leikstjórnandi og var hann að standa sig frábærlega í því hlutverki og skilaði 7 stigum. Hjá Fjölni var nýr leikmaður sem lenti í Leifsstöð á leikdegi og fékk hann að spreyta sig aðeins á vellinum. Springer heitir kappinn og spilaði sem framherji, skoraði 9 stig og tók nokkur fráköst á þeim 15-20 mínútum sem hann spilaði.
Hjá Fjölni var Tómas Tómasson eða ( Tommi Tomm ) stigahæstur með 17stig, Magni 16 stig, Jón ( Leynivopn ) Sverrisson 15 stig og rest dreifðist jafnt á liðið.
Hjá KR var Finnur Magnússon með ,,bunka” af fráköstum og 22 stig, Brynjar með 14 stig og svo rest dreifðist á liðið jafnt, en hjá KR skoruðu allir sem komu inn á.
 
Umfjöllun og myndir: Karl West Karlsson
Fréttir
- Auglýsing -