Þrír leikir fóru fram í Dominos deild karla í kvöld. KR sigruðu Hauka nokkuð örugglega að Ásvöllum og eru því efstir í deildinni. Hæst bera nefna að leikstjórnandi KR, Pavel Ermolinski, sé búinn að ná sér af meiðslum og sé mættur aftur á parketið. Hitt toppliðið, Stjarnan, sigraði Keflavík og komst því upp að hlið KR í toppsæti deildarinnar. Einnig vann Þór nokkuð sannfærandi sigur á Snæfell í Þorlákshöfn.
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild karla
Haukar 61 – 94 KR
Þór Þ. 110 – 85 Snæfell
Stjarnan 99 – 82 Keflavík




