Einn leikur fór fram í fyrstu deild kvenna í kvöld.
KR lagði ungmennalið Keflavíkur á Meistaravöllum, 87-64.
Fyrir KR átti Michaela Porter stórleik með 37 stig og 11 fráköst á meðan að hjá Keflavík voru Lovísa Bylgja Sverrisdóttir og Ásdís Jónsdóttir með 17 stigin hvor.
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild kvenna
KR 87 – 64 Keflavík U