spot_img
HomeFréttirKR kláraði Fjölni í fyrri hálfleik: Walker í hörkustuði

KR kláraði Fjölni í fyrri hálfleik: Walker í hörkustuði

 
KR afgreiddi Fjölni á 20 mínútum í kvöld er liðið vann sinn fjórða deildarleik í röð. Lokatölur í Grafarvogi voru 93-101 KR í vil en Fjölnismenn gerðu heiðarlega atlögu að forystu gestanna í þriðja leikhluta og náðu að minnka muninn í 10 stig en nær komust þeir ekki. Of mikið bensín fór í að saxa á muninn því KR opnaði leikinn 0-15. Marcus Walker var frábær framan af í leiknum og þegar líða tók á tók Pavel Ermolinskij við keflinu. KR liðið í heild var fast fyrir og lönduðu sigrinum með miðherjann Fannar Ólafsson á bekknum allan tímann.
Örvar Kristjánsson telfdi fram sínu hávaxnasta byrjunarliði í kvöld sem skilaði KR 0-15 byrjun og Fjölnismönnum líkast til sinni verstu byrjun á heimavelli í langan tíma. Brynjar Þór Björnsson kom með þrist, Marcus Walker kom með nokkra, Hreggviður splæsti í einn og Pavel sá um að KR héldi góðum hraða og Fjölnismenn vissu vart í hvorn fótinn þeir áttu að stíga.
 
KR setti fimm af sjö þristum í fyrsta leikhluta og heimamenn virkuðu logandi smeykir við gesti sína. Brandon Springer gerði fyrstu stig Fjölnis eftir fjögurra mínútna leik með gegnumbroti og gulir lifnuðu ekki sóknarlega fyrr en Tómas Heiðar Tómasson, sem byrjaði á bekknum í kvöld, kom inn í liði heimamanna.
 
Elvar Sigurðsson klóraði aðeins í bakkann fyrir Fjölni, 18-30, með þriggja stiga körfu en gestirnir leiddu 18-35 eftir upphafsleikhlutann.
 
Skarphéðinn Freyr Ingason og Matthías Orri Sigurðarson mættu snemma með tvo þrista í upphafi annars leikhluta og breyttu stöðunni í 18-43 KR í vil. Gestirnir léku hreinlega á als oddi, vörnin var þétt og allir sem einn léku af mikilli festu og krafti. Fjölnismenn áttu hreinlega ekki séns í fyrri hálfleikinn á meðan KR-ingar voru að eiga einn sinn albesta fyrri hálfleik þetta tímabilið og leiddu 42-64 í leikhléi.
 
Marcus Walker var með 17 stig í hálfleik hjá KR og Finnur Magnússon 13. Hjá Fjölni var Brandon Springer með 13 stig og Tómas Heiðar Tómasson 6.
 
Brandon og Arnþór mættu með sinn hvorn þristinn í upphafi síðari hálfleiks fyrir heimamenn sem greinilega hlustuðu vel og vandlega á hálfleiksræðu Örvars Kristjánssonar. Fjölnir opnaði síðari hálfleik 12-8 og staðan 54-72 þegar Hrafn Kristjánsson tók leikhlé. Það hafði engin áhrif því heimamenn linntu ekki látum fyrr en þeir komu muninum niður í 10 stig, 64-74 eftir þrist frá Brandon Springer sem lék fantavel í þriðja leikhluta og var kominn með 27 stig eftir 30 mínútna leik.
 
Heimamenn tóku einnig vel við sér í stúkunni en gestirnir úr Vesturbænum höfðu ekki svo glatt gleymt mögnuðum fyrri hálfleik og spýttu því í lófana og náðu muninum aftur upp í 17 stig þegar Ágúst Angantýsson setti flautuþrist í lok þriðja leikhluta.
 
Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka höfðu gestirnir náð að auka muninn aftur upp í 14 stig og héldu fast í sitt. Bersýnilega kom í ljós að munurinn var of mikill og að Fjölnismenn áttu ekki nóg á tanknum til að eiga von um að komast upp að hlið gestanna. Lokatölur reyndust svo 93-101 KR í vil og óhætt að segja að úrslitin hafi verið ráðin í leikhléi.
 
Heildarskor:
 
Fjölnir: Brandon Ja Juan Springer 32/7 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 11, Jón Sverrisson 11/5 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 11/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 9/7 fráköst/6 stoðsendingar, Tómas Heiðar Tómasson 6, Hjalti Vilhjálmsson 5/5 fráköst, Sindri Kárason 3, Elvar Sigurðsson 3, Sigurður Þórarinsson 2, Einar Þórmundsson 0, Jón Rúnar Arnarson 0.
 
KR: Marcus Walker 24/6 fráköst, Pavel Ermolinskij 23/7 fráköst/6 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 16/11 fráköst/4 varin skot, Hreggviður Magnússon 13/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 8/6 fráköst, Ágúst Angantýsson 7, Jón Orri Kristjánsson 4/6 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 3, Matthías Orri Sigurðarson 3, Ólafur Már Ægisson 0, Fannar Ólafsson 0, Páll Fannar Helgason 0.
 
Dómarar: Jón Guðmundsson, Jakob Árni Ísleifsson
 
Punktar:
-Fyrir leikinn í kvöld hafði KR unnið 3 deildarleiki í röð, 4. sæti deildarinnar með 20 stig
-Fyrir leikinn í kvöld hafði Fjölnir tapað síðustu 2 deildarleikjum á heimavelli, í 9. sæti deildarinnar með 10 stig.
-Hreggviður Magnússon var í byrjunarliði KR en Fannar Ólafsson, miðherji, á bekknum og kom ekki við sögu í liði KR í kvöld..
,,Ekki segja fylgjast með, hvað heldur þú að ég sé að gera?,” sagði Jón Guðmundsson annar dómara leiksins í kvöld við leikmann Fjölnis. Sterk lína hér á ferðinni.
-Tómas Daði Bessason reyndi við heimsmetið í miðjuskotum í hálfleik. Fékk 1 mínútu og setti niður tvö skot. Heimsmet sem Bandaríkjamaðurinn Eric Valentin setti á dögunum var 8 skot ofan í frá miðjum velli og undirrituðum segir svo hugur um að fleiri Íslendingar en Tómas Daði muni reyna við þetta skrímsli af meti á næstunni.
Tilþrif leiksins: 5 mínútur eftir af leiknum þegar Walker stal boltanum af Brandon Springer á miðjum vellinum, Walker brunaði svo upp, sneiddi sér í gegnum teig Fjölnis og lagði boltann í netið á nýju Íslandsmeti, öll þessi aðgerð tók ekki mikið lengri tíma en 3 sekúndur! Spurning hvort Walker reyni ekki fyrir sér í 100 metrunum á Meistaramóti Íslands nú í sumar?
 
Umfjöllun og mynd: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -