spot_img
HomeFréttirKR í viðræðum við Victor Finora

KR í viðræðum við Victor Finora

 
KR-ingar eru í viðræðum við bandaríska körfuknattleiksþjálfarann Victor Finora um að taka að sér þjálfun karlaliðs félagsins á næstu leiktíð, samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu og á www.mbl.is í dag.
Ef af ráðningunni verður mun Finora taka við liðinu af Páli Kolbeinssyni sem ákvað að láta af störfum eftir eitt keppnistímabil en Páll er í meistaraflokksráði vesturbæjarliðsins.
 
Þá er óráðið hver taki við þjálfun kvennaliðsins en Benedikt Guðmundsson sem gerði liðið að meisturum á síðustu leiktíð hefur tekið við 1. deildarliðinu Þór úr Þorlákshöfn.
 
www.mbl.is 

Ljósmynd/ Jón Björn Ólafsson Finnur Magnússon og félagar í KR verða mögulega undir stjórn Victors Finora á næstu leiktíð. 

Fréttir
- Auglýsing -