KR hefur unnið átta af síðustu tíu deildarviðureignum sínum gegn Njarðvík og unnið síðustu þrjár í röð með samtals 55 stiga mun, nú í fyrri umferðinni með 20 stiga mun 91-71 og í síðari deildarviðureign liðanna á síðasta tímabili vann KR með 23 stiga mun.
Njarðvík vann mikilvægan sigur á Haukum í síðustu umferð en KR mátti þola tap í miklum spennuslag gegn Snæfell. Það er von á miklum slag í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem sigur hjá KR getur brúað enn frekar sögulegt bil á milli liðanna.
Leikir liðanna – alls 107
Síðustu tíu leikir liðanna í úrvalsdeild
Tímabil Heima-Heiman – lokatölur – dagsetning Heimavöllur
2006 Njarðvík-KR 87 84 19.1.2006 Njarðvík
2007 KR-Njarðvík 75 69 19.11.2006 KR-hús
2008 KR-Njarðvík 82 81 1.11.2007 KR-hús
2008 Njarðvík- KR 97 106 7.2.2008 Njarðvík
2009 KR-Njarðvík 103 48 17.11.2008 KR-hús
2009 Njarðvík-KR 93 115 27.2.2009 Njarðvík
2010 Njarðvík-KR 76 68 1.11.2009 Njarðvík
2010 KR-Njarðvík 89 77 8.2.2010 KR-hús
2011 KR-Njarðvík 92 69 12.11.2010 KR-hús




