Íslandsmeistarar KR tóku á móti bikarmeisturum Grindavíkur í DHL Höllinni í kvöld. Sprækur en óagaður fyrri hálfleikur hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar meistarar KR settu upp sitt rétta andlit. Úr varð stærsta tap Grindavíkur í deildarkeppni úrvalsdeildar í sögu félagsins! Lokatölur 118-73 þar sem Pavel Ermolinskij skrásetti fyrstu þrennu tímabilsins í Domino´s deild karla.
KR-ingar gefa engin grið þegar Suðurnesjaliðin eru annars vegar þetta tímabilið. Skelltu Njarðvík í fyrsta leik með 14 stiga mun, Keflavík var næsta fórnarlamb þeirra með 23 stiga mun og Grindavík steinlá í kvöld gegn röndóttum með 45 stiga mun!
Vitaskuld var á brattann að sækja, bikarmeistarar Grindavíkur mættu í DHL Höllina án Bandaríkjamanns og með þá Þorleif , Jóhann Árna og Daníel Guðna í meiðslum. Gestirnir mættu með svæðisvörn til leiks en klárir karlar í KR leystu vel úr henni og leiddu 32-26 eftir fyrsta leikhluta þar sem Darri Hilmarsson var beittur með 12 stig.
Þorsteinn Finnbogason splæsti í tvo góða þrista fyrir Grindavík í öðrum leikhluta, annar meira að segja í spjaldið og ofaní, ókallað. Næsti maður á svið var Finnur Atli Magnússon með létta rispu og m.a. hraðaupphlaupstroðslu. Hlutirnir gerðust hratt, ákvarðarnir voru slæmar og leikur í gangi sem er fáum þjálfurum að skapi. Meistarar KR leiddu engu að síður 53-44 í hálfleik og flestir að furða sig á því af hverju munurinn væri ekki meiri.
Gestir í DHL Höllinni fengu strax svör við ofangreindri spurningu sinni í upphafi síðari hálfleiks. KR opnaði þriðja hluta 10-0 og í þeirri syrpu var m.a. stórglæsileg „hollý hú“ troðsla sem Craion hamraði niður. Þetta var rétt forsmekkurinn af rassskellingunni sem Grindavík átti eftir að fá. Pavel Ermolinskij datt í fyrstu þrennu tímabilsins eftir 25 mínútna leik og KR vann þriðja hluta 36-12. Það var ekki að sjá að hér væru að mætast ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar. Staðan 91-56 og dæmið búið.
Fjórði leikhluti gat einna helst af sér brottrekstrarvillu hjá Magnúsi Þór Gunnarssyni og nokkuð víst að hann muni taka út leikbann fyrir brot sitt á Brynjari Þór Björnssyni. Lokatölur 118-73 eins og áður segir og svartasti dagur Grindavíkur í deildarkeppninni mættur í sögubækurnar þeirra.
Tveir leikmenn KR hoppuðu yfir 40 framlagsstigin, Pavel með 18 stig, 13 fráköst og 17 stoðsendingar og 45 í framlag og Craion með 27 stig og 18 fráköst og 43 í framlag. Hjá Grindavík var Oddur Rúnar Kristjánsson með 15 stig en ljóstýra Grindavíkur eru sú að þetta getur vart versnað úr þessu.
Mynd/ Einar Reynisson – Finnur Atli Magnússon kom askvaðandi inn í teig Grindavíkur í kvöld og hamraði honum niður!



