Úrslitakeppni efstu deildar karla hefst með hvelli í kvöld þegar Íslands-,deildar- og bikarmeistarar KR fá nýliða Þórs Ak í heimsókn í DHL höllina.
Þarna mætast þau lið sem hafa hvað mesta sögu og minnstu söguna í úrslitakeppninni frá upphafi. Þór Ak hefur einungis þrisvar komist í úrslitakeppnina og eingöngu með einn sigur í þeirri keppni frá upphafi. Hann kom gegn Haukum árið 2000 en síðast var liðið í úrslitakeppni árið 2008. Þá féll liðið út gegn Keflavík 2-0 en í liði Keflavíkur var Þröstur Leó Jóhannsson sem nú leikur með Akureyringum.
KR aftur á móti hefur unnið 19 leiki í röð í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla án þess að tapa leik. Síðasti tapleikur KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar var 3. apríl 2008 er liðið tapaði gegn ÍR í DHL-höllinni. Síðan þá hefur liðið sópað andstæðing sínum úr leik í fyrstu umferð ár eftir ár.
Á þessum árum hefur engu skipt hvort liðið hefur endað í efsta sæti eða því sjöunda. Þá er þetta fjórða tímabilið síðan leikjunum í átta liða úrslitum var fjölgað í fimm mögulega. Sjá má sögu KR í átta liða úrslitum síðustu ára hér að neðan.
2008
Staða í deild: 2. sæti.
Átta liða úrslit gegn ÍR: Tap 1-2.
2009
Staða í deild: 1. sæti.
Átta liða úrslit gegn Breiðablik: 2-0 sigur
2010
Staða í deild: 1. sæti.
Átta liða úrslit gegn ÍR: 2-0 sigur.
2011
Staða í deild: 2. sæti
Átta liða úrslit gegn Njarðvík: 2-0 sigur
2012
Staða í deild: 2 sæti.
Átta liða úrslit gegn Tindastóls: 2-0 sigur
2013
Staða í deild: 7 sæti.
Átta liða úrslit gegn Þór Þ. 2-0 sigur
2014
Staða í deild: 1. sæti
Átta liða úrslit gegn Snæfell: 3-0 sigur
2015
Staða í deild: 1. sæti
Átta liða úrslit gegn Grindavík: 3-0 sigur
2016
Staða í deild: 1. sæti
Átta liða úrslit gegn Grindavík: 3-0 sigur
Ljóst er að sigri KR í kvöld verður það 20 sigurleikurinn í röð í átta liða úrslitum sem er magnaður árangur. KR hefur staðið uppi sem Íslandsmeistari í fimm af þessum átta tímabilum sem það hefur verið ósigrað og því spurning hvort sópið gefi góð fyrirheit?
Leikur liðanna hefst klukkan 19:15 og fer fram í DHL-höllinni heimavelli KR. Að sjálfsögðu er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst útsending kl 19:05.




