spot_img
HomeFréttirKR deildarmeistarar eftir sigur gegn Snæfelli

KR deildarmeistarar eftir sigur gegn Snæfelli

 

Sigurður Þorvaldsson var ekki með gegn sínum gömlu félögum þegar KR mætti í heimsókn til Snæfellinga en Jón Arnór Stefánsson var einnig fjarverandi en talið var að þeir félagar hafi orðið eftir á skíðasvæði Grundarfjarðar. Hið sanna eru þó meiðsli og veikindi. KR urðu deildarmeistara eftir sigur í leiknum og hvernig úrslit annara leikja raðaðist upp. Snæfell og Skallagrímur falla.

 

 

Snæfellingar voru yfir 11-3 snemma í fyrsta leikhluta og voru að spila ágætlega og fína vörn. KR menn hristu af sér ferðarykið fljótt og komust yfir með 13-0 áhlaupi 11-16 þar sem Darri Hilmars setti tóninn með 5 góðum stigum. Staðan eftir þann fyrsta var 13-19 fyrir gestina. Snæfellingar héldu í við KR í öðrum hluta og voru tíu stigum undir í hálfleik 37-47. Covile var kominn með 17 stig og 10 fráköst fyrir Snæfell og Philip Alawoya var með 15 stig hjá KR.

 

Þriðji leikhluti var einkar mikið puð hjá öllum á vellinum og lítið skorað framan miðað við annan hluta sem fór 24-28 en þegar 2 mín voru eftir af þriðja hluta var skorið 9-11. Staðan fyrir lokahlutann 50-63 fyrir KR. Eftir að Snæfell hafði elt tíu stigum á eftir svona heilt yfir leikinn, eftir að KR komust yfir í fyrsta fjórðung, þá gáfu þeir meira eftir í fjórða hluta og KR leiddu með 21 stigi 57-78 en þar skiljast leiðir af alvöru og farið var að glitta í hver færi með sigur af hólmi í leiknum og segja má að önnur þáttaskilin hafi átt sér stað frá því í fyrsta hluta. Leikurinn endaði á öruggum sigri KR 67-87 í þessum síðasta heimaleik Snæfells í dominosdeild karla að sinni. Þeir eiga þó einn leik eftir í deildinni gegn Þór Akureyris en fá að hlutverk að

 

Hjá Snæfelli var Christina David Covile með 26 stig og 16 fráköst og honum næstur Andrée Michelsson 13 stig. Hjá KR var Philip Alawoya maður leiksins og setti 26 stig og tók 6 fráköst en Pavel Ermolinskji var meðp 15 stig 11 fráköst og 8 stoðsendingar.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn 

 

Umfjöllun / Símon B Hjaltalín

Myndir / Sumarliði Ásgeirsson

Fréttir
- Auglýsing -