HomeFréttirKR bikarmeistari í unglingaflokki karla

KR bikarmeistari í unglingaflokki karla

KR er bikarmeistari í unglingaflokki karla eftir þægilegan sigur á Fjölni í Vodafonehöllinni í dag. KR tók strax frumkvæðið í leiknum og leiddi allan tímann. Björn Kristjánsson var valinn maður leiksins með 27 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar en lokatölur urðu 75-64 KR í vil. Hjá Fjölni var Arnþór Freyr Guðmundsson atkvæðamestur með 24 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar.
Röndóttir úr vesturbænum voru klárir frá fyrstu mínútu og komust í 6-0 áður en Arnþór Freyr Guðmundsson náði að koma niður fyrstu Fjölnisstigunum eftir tvær og hálfa mínútu. Fjölnir barði sig upp að hlið KR í stöðunni 14-13 en þá tók Martin Hermannsson á rás og kom KR í 21-13 með þriggja stiga körfu og KR leiddi svo 23-16 að loknum fyrsta leikhluta.
 
Oddur Kristjánsson hélt KR við efnið með þriggja stiga körfu í upphafi annars leikhluta og kom KR í 26-16. KR-ingar voru grimmari í öllum sínum aðgerðum þar sem Kristófer Acox var að skila inn mikilli vinnu á báðum endum vallarins.
 
KR sótti grimmt á körfu Fjölnismanna og var líka mikið á vítalínunni, reyndar kom þar inn hið margfræga íslenska mein að varnarmenn megi í fáum tilfellum verja skot sóknarmanna án þess að fá fyrir það villu.
 
Vesturbæingar flugu ansi myndarlega undir radarinn hjá dómurum leiksins í öðrum leikhluta, fengu ekki dæmda á sig villu fyrr en eftir tæplega átta mínútna leik í öðrum leikhluta! Fjölnismenn gátu aftur á móti verið svekktir með sjálfa sig að brjóta ekki almennilega á KR-ingum sem fengu fjölmörg færi á körfu og víti að auki og leiddu því 45-36 í hálfleik.
 
Martin Hermannsson var með 13 stig, 4 fráköst og 2 stoðsendingar fyrir KR í leikhléi en hjá Fjölni var Arnþór Freyr Guðmundsson með 17 stig og 5 fráköst.
 
Báðum liðum gekk illa að finna körfuna í upphafi síðari hálfleiks, Egill Vignisson rauf þó þögnina þegar hann kom KR í 47-36 með körfu í teignum en það var Björn Kristjánsson sem leiddi KR í gegnum þriðja leikhluta. Björn skellti niður tveimur þristum með skömmu millibili og kom KR í 58-43 og skömmu síðar lauk hraðaupphlaupi KR með körfu frá Kristófer Acox og staðan 60-43 þegar Fjölnir tekur leikhlé og rétt rúmar fimm mínútur liðnar af leikhlutanum.
 
KR gerði reyndar aðeins fjögur stig næstu fimm mínúturnar eða svo og var varnarleikurinn allsráðandi hjá báðum liðum undir lok þriðja leikhluta. KR leiddi 64-49 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og fátt sem benti til þess að Fjölnir væri að berja sér leið nærri þeim.
 
Röndóttir skoruðu ekki stig fyrstu þrjár og hálfa mínútuna í fjórða leikhluta en það virtist lítið gagnast Fjölni sem voru mislagðar hendur í sóknarleik sínum, mýgrútur af færum í teignum sem dönsuðu af hringnum og aldrei nægileg ákefð hjá gulum til þess að færa sig nærri KR. Vesturbæingar höfðu það því nokkuð þægilegt í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn 75-64, verðskuldaður sigur sem þegar öllu er á botninn hvolft var aldrei í hættu.
 
KR:
Björn Kristjánsson – 27 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar
Kristófer Acox – 14 stig og 19 fráköst
Martin Hermannsson – 14 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar
 
Fjölnir:
Arnþór Freyr Guðmundsson – 24 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar
Björgvin Ríkharðsson – 10 stig og 4 stoðsendingar
Haukur Sverrisson – 9 stig og 5 fráköst
 
Karfan.is óskar KR innilega til hamingju með bikartitilinn
 
Umfjöllun og mynd/ [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -