spot_img
HomeFréttirKotila með æfingabúðir í Hólminum í mánaðarlok

Kotila með æfingabúðir í Hólminum í mánaðarlok

06:00
{mosimage}

(Kotila mun stjórna æfingabúðunum sem verða öllum opnar) 

 

Helgina 30. maí til 1. júní verða haldnar æfingabúðir í körfuknattleik á vegum Körfuknattleikdsdeildar Snæfells fyrir krakka 13 ára og eldri. Yfirþjálfari æfingabúðanna verður Geoff Kotila og honum til aðstoðar verða Hlynur Bæringsson, Jón Ólafur Jónsson og fleiri. Fyrirhugað er að hefja æfingar kl. 17.00 á föstudeginum og ljúka þeim milli 14.00 og 15.00 á sunnudeginum.

 

Dagskrá með nánari tímasetningum kemur inn á heimasíðu Snæfells þegar nær dregur og fjöldi skráðra þátttakenda fer að skýrast. Þátttökugjald er kr. 10.000 en innifalið í því gjaldi er auk æfinganna, frítt í sund og gisting fyrir þá sem þess þurfa í grunnskólanum.


 

Verið er að leita tilboða á matsölustöðum bæjarins og verða settar inn upplýsingar um það um leið og þær liggja fyrir. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst í netfangið [email protected] en þar þarf að koma fram fullt nafn, kennitala og hvort viðkomandi þurfi gistingu. Þeir sem hyggjast gista í grunnskólanum þurfa að hafa með sér dýnu og svefnpoka. Ef frekari upplýsinga er óskað þá vinsamlegast sendið tölvupóst í framangreint netfang.  

 

Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -