Opnað hefur verið fyrir kosningu í árlegan stjörnuleik NBA deildarinnar og mun hún standa næstu 19 dagana, en leikurinn fer fram í New Orleans þann 19. febrúar næstkomandi. Síðustu ár hefur venjan verið svo á að það séu aðeins áhangendur sem að velja byrjunarlið liðanna á meðan að þjálfarar hafa valið restina af liðinu. Sú breyting hefur verið gerð þetta árið að nú eru það áhangendur, leikmenn og valdir meðlimir fjölmiðla sem að velja byrjunarliðin í sameiningu.
Hérna er meira um stjörnuleikinn




