spot_img
HomeFréttirKosið til forseta FIBA Europe um helgina

Kosið til forseta FIBA Europe um helgina

 
Um næstu helgi 14.-16.maí nk. mun fara fram hið árlega þing evrópska körfuknattleikssambandins FIBA Europe. Á þessu þingi verður kosið um nýjan forseta sambandsins til næstu fjögurra ára og mun þar okkar fulltrúi Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ , fv.formaður KKÍ og núverandi stjórnarmaður í FIBA Europe vera í kjöri til forseta sambandsins ásamt Turgay Demirel frá Tyrklandi. Það er 51 þjóð innan FIBA Europe og fer hver þjóð með eitt atkvæði. Kosninginn fer fram laugardaginn 15.maí og má búast við því að niðurstaða liggi fyrir seinnipartinn þann dag.
FIBA Europe er eitt af fimm svæðasamböndum körfuknattleiks í heiminum og ber ábyrgð á þróun körfuknattleiksíþróttarinnar í Evrópu auk þess að fara með yfirstjórn allra körfuknattleiksmála í álfunni. FIBA Europe er því eitt af stærri álfusamböndum innan íþróttahreyfingarinnar og því yrði það mikill sigur fyrir Ólaf og Ísland nái hann kjöri sem forseti sambandsins, enginn Íslendingur hefur tekið að sér forystu í jafn stóru alþjóðlegu sambandi innan íþróttahreyfingarinnar.
 
Ólafur hefur ásamt forssvarsmönnum KKÍ unnið vel að framboðinu síðustu mánuði og hefur Ólafur m.a heimsótt þó nokkuð margar þjóðir til að koma stefnumálum sínum á framfæri.
 
Hægt er að kynna sér stefnumál Ólafs á heimasíðunni http://www.rafnsson.is/pages/ fólk er hvatt til að skoða þessa síðu og sjá það sem Ólafur hefur fram að færa, einnig er þar að finna ítarlegan bækling http://www.rafnsson.is/content/files/public/documents/olafurrafnsson_programme.pdf sem var sendur á öll aðildarlönd FIBA Europe núna í apríl.
 
Ólafur er lögfræðingur að mennt og rekur eigin lögmannsstofu í Hafnarfirði. Hann hefur verið í stjórn FIBA Europe frá árinu 2002 og var síðast kjörinn í stjórnina með góðri kosningu árið 2006. Síðast liðin fjögur ár hefur Ólafur verið varaforseti fjármálaráðs FIBA Europe og forseti áfrýjunardómstóls Alþjóðakörfuknattleikssambandsins (FIBA) auk þess að sitja í ýmsum nefndum og vinnuhópum.
 
Ólafur Rafnsson hefur verið forseti Íþrótta- og Olympíusambands Íslands frá árinu 2006 en var áður formaður Körfuknattleikssambands Íslands um tíu ára skeið. Ólafur hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan íþróttahreyfingarinnar.
 
Ofangreint er tilkynning frá Körfuknattleikssambandi Íslands

Ljósmynd/ Gunnar Gunnarsson

Fréttir
- Auglýsing -