Ísland mætir Eistlandi í undankeppni Evrópumóts landsliða í Laugardalshöllinni núna klukkan 19:15 í kvöld. Í þessum skrifuðu orðum er neðri stúkan hálffull og nokkuð farið að setjast í efri stúku hallarinnar. Betra má ef duga skal eins og sagt er. Ísland hefur leikið fjóra leiki í keppninni til þessa, unnið einn og tapað þremur. Ísland stendur því í fimmta sæti af 6 liðum með 5 punkta. Eistland er þar einu sæti ofar með 6 punkta eftir tvo sigurleiki og tvö töp.
Pavel Ermonlinskij er kominn aftur í lið Íslands eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna nárameiðsla. Það munar um minna fyrir liðið og gefur það okkar mönnum byr undir báða vængi.
Eftir leik mun hér koma inn leiklýsing ásamt nokkrum viðtölum við vel valda leikmenn eða þjálfara liðana. Fylgist vel með.
Áfram Ísland!
mynd: [email protected]




