spot_img
HomeFréttirKörfuboltaveisla í Höllinni næstu fimm daga

Körfuboltaveisla í Höllinni næstu fimm daga

Keppni í körfuknattleik á Smáþjóðaleikunum hefst í dag og gestgjafar Íslands eiga þá sinn fyrsta leik kl. 19:30 þegar kvennalandsliðið mætir Möltu kl. 19:30. Opnunarleikur körfuboltakeppninnar á leikunum er viðureign Lúxemborgar og Mónakó í kvennaflokki sem hefst kl. 14:30 í Laugardalshöll. Frá og með deginum í dag gengur því fimm daga körfuboltaveisla í hönd.

Enginn aðgangseyrir er á Smáþjóðaleikana og því allir körfuknattleiksunnendur og landsmenn hvattir til þess að Fjölmenna í Laugardalshöll og styðja vel við bakið á íslensku liðunum. Karlaliðið hefur svo leik á morgun, 3. júní, þegar liðið tekur á móti Andorra.

Leikir dagsins á Smáþjóðaleikunum, Laugardalshöll:

14:30 Lúxemborg – Mónakó – konur
17:00 Lúxemborg – Svartfjallaland – karlar
19:30 Ísland – Malta – konur

Viðburðaskrá Smáþjóðaleikanna

Mynd/ [email protected] – Frá kynningarfundi 2013 fyrir Smáþjóðaleikana. Helena Sverrisdóttir ásamt Hannesi formanni KKÍ og Guðbjörgu varaformanni KKÍ.

Fréttir
- Auglýsing -