Stöð 2 Sport mun auka gífurlega umfjöllun sína um Dominos-deildirnar í körfubolta í vetur, en einn leikur verður í beinni útsendingu í hverri umferð bæði í Dominos-deild karla og kvenna.
Einnig verður nýr þáttur á dagskrá sem ber heitið Dominos-Körfuboltakvöld, en þar fara sérfræðingar yfir hverja umferð í Dominos-deild karla.
Fyrsti þátturinn verður á dagskrá 14. október, en þar verður hitað upp fyrir deildina. Fyrsta beina útsendingin verður svo 16. október þar sem bikarmeistarar Stjörnunnar taka á móti Íslandsmeisturum KR í Ásgarði.
Körfuboltakvöld verður á dagskrá eftir beinar útsendingar í Dominos-deild karla, en í þættinum verður sýnt frá öllum leikjunum, þar verða viðtöl við leikmenn og þjálfara eftir alla leiki og sérfræðingar þáttarins sjá um að greina allt það góða og allt það slæma.



