spot_img
HomeFréttirKörfuboltabúðir KR vikuna 15.-19. ágúst.

Körfuboltabúðir KR vikuna 15.-19. ágúst.

 
Körfuknattleiksdeild KR stendur fyrir körfuboltabúðum vikuna 15.-19. ágúst fyrir stráka og stelpur á aldrinum 10 til 18 ára. Búðirnar standa yfir frá klukkan 16.00 til 19.30 daganna fimm en húsið opnar 15.30.
Fyrirkomulag búðanna er að leikmönnum verður skipt í hópa eftir aldri og fer fyrir hluti hverrar æfingar fram í formi stöðvaþjálfunar. Færir þjálfarar mun sjá um þjálfun á stöðvunum en meðal þeirra er okkar fremsti atvinnumaður, Jón Arnór Stefánsson auk Brynjars Þór Björnsonar og leikmanna meistaraflokka KR ásamt gestaþjálfurum sem kynntir verða til sögunnar síðar. Seinni hluti æfinganna verður síðan helgaður leikjum en mismunandi mót verða haldin hvern dag til að mynda 5 á 5, 3 á 3, 2 á 2, 1 á 1. Síðasta daginn verða síðan ýmsar skemmtilegar keppnir auk þess að verðlaun verða veitt fyrir frammistöðuna í búðunum.
 
Yfirþjálfari búðanna er Hrafn Kristjánsson, þjálfari meistaraflokka karla og kvenna KR.
Verð er aðeins 3.500 kr fyrir þessa fimm daga en skráning fer fram á [email protected]
Frekari upplýsingar veita Hrafn Kristjánsson, s:8978311 og Finnur Stefánsson s:822-1441 [email protected]
Fréttir
- Auglýsing -