HomeFréttirKörfuboltabúðir Ágústar: Dagskrá

Körfuboltabúðir Ágústar: Dagskrá

Ágúst Björgvinsson, körfuknattleiksþjálfari mun halda körfuboltabúðir ellefta árið í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudeginum 4. júní til fimmtudags 7. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.
 
Þessir krakkar fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu Ágústs og fjölda annarra þjálfara sem munu aðstoða hann þessa fjóra daga sem búðirnar fara fram. Körfuboltabúðirnar eru á milli 17.00 og 20.30 frá mánudeginum 4. júní til fimmtudagsins 7.júní og verðið er 6.500 krónur.
 
Fréttir
- Auglýsing -