Körfuboltaakademía er nú rekin í tengslum við Fjölbrautaskóla Norðurland vestra á Sauðárkróki þar sem nemendur æfa körfubolta af kappi undir stjórn Bárðar Eyþórssonar körfuboltaþjálfara. Hann segir að í akademíunni sé lögð áhersla á einstaklings miðaðar æfingar sem á að bæta menn á öllum vígstöðvum hvort sem er drippl, hreyfing, samhæfing eða líkamsstyrk. Feykir.is greinir frá.
Í nýjasta Feyki er viðtal við Bárð þar sem hann segir frá akademíunni, þjálfuninni og sjómennskunni en hann hefur skipstjórnarréttindi upp á vasann og margra ára reynslu af sjómannsstörfum.
Hér má svo nálgast viðtal við Bárð á heimasíðu Feykis.





