HomeBónus deildinBónus deild karlaKörfuboltaættin mætir sjálfri sér í úrslitakeppninni

Körfuboltaættin mætir sjálfri sér í úrslitakeppninni

Þegar flautað verður til leiks í oddaleik Vals og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Bónus deildarinnar á sunnudag, verður meira en bara sæti í undanúrslitum undir.

Í bakvarðarsveitunum mætast nefnilega bræðrasynirnir Kári Jónsson, stjarna Valsmanna, og Hilmar Pétursson, lykilmaður Keflvíkinga, en þeir eru báðir af einni af körfuboltaættum landsins. Þótt þeir klæðist í dag ólíkum treyjum eiga þeir sameiginlegar rætur í Hafnarfirði, enda báðir uppaldir Haukar líkt og bróðir Hilmars, landsliðsmaðurinn Sigurður Pétursson sem leikur með Álftanesi.

Pétur var þjálfari Keflavíkur 2023-25

Arfleifð Ingvars lifir góðu lífi á vellinum

Hæfileikarnir virðast liggja í genunum hjá frændunum, því feður þeirra, Jón Arnar Ingvarsson og Pétur Ingvarsson, voru á sínum tíma á meðal bestu leikmanna þjóðarinnar og lykilmenn í sterkum liðum Hauka. Ættartréð teygir sig enn lengra aftur þar sem afi þeirra, Ingvar Jónsson, var brautryðjandi sem bæði leikmaður og þjálfari hjá félaginu. Það er því ákveðin kaldhæðni örlaganna að á meðan Pétur Ingvarsson stýrir nú karlaliði Hauka í fyrstu deildinni af hliðarlínunni, mætast synir hans og bróðursonur í hápunkti tímabilsins sem andstæðingar í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.


Pétur og Jón Arnar Ingvarssynir með föður þeirra Ingvari Jónssyni.
Fréttir
- Auglýsing -