Mjótt var á mununum í síðustu könnun hér á Karfan.is en þá spurðum við lesendur með hvaða liði þeir héldu í Iceland Express deild kvenna. Hátt í 700 tóku þátt í könnuninni þar sem Njarðvíkurkonur fengu 15% atkvæða og höfðu þar nauman sigur sem vinsælasta lið deildarinnar því þar strax á eftir komu Keflavík, Hamar og KR öll með 14%
Úrslit síðustu könnunar
Njarðvík 15%
Keflavík 14%
Hamar 14%
KR 14%
Snæfell 13%
Fjölnir 11%
Grindavík 11%
Haukar 8%
Nú spyrjum við lesendur með hvaða liði þeir haldi í 1. deild karla.
Ljósmynd/ Njarðvíkurkonur urðu hlutskarpastar og því vinsælasta lið úrvalsdeildar kvenna.




