spot_img
HomeFréttirKönnun: Lesendur klofnir í afstöðu sinni - ríkisborgararéttur í alþjóðaboltanum

Könnun: Lesendur klofnir í afstöðu sinni – ríkisborgararéttur í alþjóðaboltanum

Nú fyrir skemmstu settum við fram könnun þar sem við spurðum lesendur hvort Ísland ætti að demba sér í þá útgerð að sækja um ríkisborgararétt fyrir stóran leikmann, þ.e. leikmann sem væri þá væntanlega tröll að burðum og myndi þannig liðsinna lágvöxnu íslensku landsliði í teignum.
Næstum því 500 manns tóku þátt í könnuninni og sitt sýnist hverjum, samþykkir því að Ísland ætti að ,,kaupa" stóran mann fyrir landsliðið voru 50% aðspurðra og hin 50 prósentin voru því mótfallin.
 
Andstæðingar Íslands í forkeppni EM telfdu margir hverjir fram t.d. Bandaríkjamönnum sem höfðu fengið ríkisborgararétt hjá viðkomandi landi og oft riðu þeir baggamuninn eins og sást í leiknum gegn Svartfellingum. Þetta ku vera afar algengt og sem dæmi má nefna Bo McCalebb leikmann landsliðs Makedóníu sem farið hefur hamförum með landsliði Makedóna.
 
Hvað verður skal ósagt látið en ljóst er að margir ylja sér við þá hugmynd um að ,,kaupa" stóran mann fyrir Ísland til að gera A-landsliðið samkeppnishæfara.
 
Nú höfum við sett inn nýja könnun og að þessu sinni spyrjum við:
Ert þú með ársmiða á leiki hjá þínu félagi?
  
Fréttir
- Auglýsing -