HomeFréttirKönnun: KFÍ með bestu beinu netútsendingarnar

Könnun: KFÍ með bestu beinu netútsendingarnar

Síðustu daga höfum við leitast eftir því hjá lesendum að finna hverjir væru með bestu beinu netútsendingarnar frá körfuboltanum. Þau leiðu mistök urðu að gleyma að setja inn tvo aðila í könnunina, KFÍ TV og Þór Akureyri TV. Reyndar komu þessir valkostir inn eftir að glöggir lesendur höfðu bent okkur á þennan ágalla könnunarinnar.
Spurt var: Hver er með bestu beinu netútsendingarnar?
 
KFÍ TV hafði 27% atkvæða en alls kusu 519 í könnuninni. Í 2. sæti með 22% atkvæða var Sport TV og í 3. sæti kom Tindastóll TV með 18%.
 
Nú er komin inn ný könnun þar sem við spyrjum fólk hvaða lið það telji að fari með KFÍ upp í úrvalsdeild á næstu leiktíð.
  
Fréttir
- Auglýsing -