ÍR-ingurinn Leó Curtis og lið Nebraska-háskóla halda áfram að skrifa söguna í úrslitakeppni háskólaboltans vestanhafs. Liðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum í gærnótt með dramatískum 74-72 sigri á Vanderbilt, en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem skólinn vinnur leiki í úrslitakeppninni. Leó, sem er á sínu nýliðaári, skoraði tvö stig í leiknum en liðið mætir annaðhvort Florida eða Iowa í næstu umferð.
Sigurinn vekur sérstaka athygli hér á landi, ekki síst vegna tengsla Nebraska við Breiðholtið, en Matej Kavas, núverandi leikmaður ÍR, lék einmitt með liðinu tímabilið 2019-2020.





