Tveir leikir eru í dag. í Dominos deild kvenna taka Haukar á móti Skallagrím. Með sigri getur Skallagrímur jafnað Snæfell að stigum í 2. sæti deildarinnar, en Haukar komist úr botnsæti deildarinnar. Í fyrstu deild karla tekur FSU á móti Ármanni. Bæði eru liðin í neðri helming deildarinnar, en með sigri getur FSU komist upp í 5. sætið. Ármann hinsvegar verður áfram í botnsæti deildarinnar, hafa tapað öllum 10 leikjum sínum til þessa í vetur með um 47 stigum að meðaltali hvern leik.
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna:
Haukar Skallagrímur – kl. 19:15
1. deild karla:
FSU Ármann – kl. 19:15




