Það sem flestir Kobe stuðningsmenn óttuðust og fleiri er orðið að veruleika. Kobe Bryant hefur tilkynnt að þetta sé hans seinasta tímabil í boltanum og hefur þar með ákveðið að leggja skó sína á hilluna. Kobe splæsti í nánast heilsíðu ljóð þegar hann tilkynnti þessi viðskil hans við körfuboltann eins og hann kýs að orða þetta.
Allt frá því að vera með upprúllað sokkapar frá pabba sínum, hendandi þeim í ruslatunnu og um leið að ýminda sér að NBA titilinn væri undir ti lþess að hafa gefið körfuboltanum allt sitt líf. Slíkar eru lýsingar hans í þessu ljóði hans. Bryant sem er 37 ára gamall er að eiga sitt allra erfiðasta tímabil ef svo má segja. Meðaltöl hans eru 15 stig og 4 fráköst en ofaní lag þá er lið hans LA Lakers nánast orðið aðhlátursefni í deildinni.
"Sorglegt að heyra" sagði Byron Scott þjálfari Lakers aðspurður um þessar glóðvolgu fréttir
"Hann er það næsta sem við getum líkt við sjálfan Michael Jordan. Hann er líkast til næst besti skotbakvörður allra tíma. Vilji hans til að sigra leiki er ótrúlegur og hann æfði eins og skepna" sagði goðið Magic Johnson við þetta tækifæri.
Kobe hefur spilað 20 tímabil í deildinni, öll með LA Lakers sem er met. Hann spilaði 17 stjörnuleiki og 15 sinnum valin í lið ársins ásamt því að vera 12 sinnum í varnarliði ársins. Kobe vann 5 titla með Lakers,