Íslenska kvennalandsliðið er mætt í Generali Arena í Miskolc en nú er tæpur klukkutími þangað til viðureign Ungverjalands og Íslands fer fram í forkeppni EuroBasket 2017. Bæði lið eru að leika sinn fyrsta leik í forkeppninni.
Íslenska liðið tók æfingu í morgun og átti svo rólegan dag en nú fer alvaran að bresta á. Ungverjar eru með hávaxið lið en það íslenska ætlar að selja sig dýrt og mæta ákveðið til leiks en ofuráhersla hefur verið lögð á varnarleik íslenska liðsins.
Hér í húsi þekkir Helena Sverrisdóttir hvern krók og kima og viðbúið að Ungverjar taki hana föstum tökum.
Hægt verður að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu leiksins hér