Skemmdarverk voru unnin á eigum leikmanna Stjörnunnar á meðan á leik liðsins gegn ÍR stóð í Seljaskóla í gærkvöldi. Karfan.is náði tali af formanni KKÍ vegna málsins en hann segir félögin sjálf hafa útkljáð málið sín á milli án viðkomu KKÍ.
"Það hefur verið vel tekið á þessu af hálfu ÍR og öllum viðkomandi þykir þetta að sjálfsögðu afar leitt að þetta hafi komið upp á." Hannes segir KKÍ hafa þó ítrekað að öll öryggisatriði þurfi að vera í lagi en "þrátt fyrir góða gæslu í Seljaskóla í gærkvöldi þá gerist þetta því miður."
Hannes bendir jafnframt á að þetta geti hugsanlega komið fyrir hvar sem er og "það sýni okkur að það þarf að manna alla gæslu enn betur og við munum ítreka það til félaganna okkar."



